Um Þórdísi
Ég heiti Þórdís Pétursdóttir og er tölvunarfræðingur, sjúkraþjálfari og móðir tveggja drengja. Eins og margir aðrir foreldrar velti ég því reglulega fyrir mér hvernig ég get hjálpað þeim að þróa heilbrigð og örugg samskipti við tæknina.
Þrátt fyrir að hafa menntun í tölvunarfræði fann ég mig oft leita að svörum. Tæknin breytist hratt og með henni spurningarnar sem foreldrar standa frammi fyrir. Ég spurði mig meðal annars:
- Hvernig set ég skynsamleg mörk á skjátíma?
- Hvernig kem ég í veg fyrir óvænt kaup í leikjum og öppum?
- Hvernig vel ég efni sem hentar aldri barnanna?
Og svo mætti lengi telja.
Stafrænt Uppeldi var stofnað til þess að svara þessum spurningum og hjálpa foreldrum að taka upplýstar ákvarðanir um tækninotkun barna sinna.
Ég er að undirbúa fyrstu námskeiðin og vinnustofurnar. Ef þú vilt fá upplýsingar þegar opnað verður fyrir skráningu, geturðu skráð áhuga hér.